Nýtt starfsár Bláu kirkjunnar

Um leið og við þökkum þeim tónlistarmönnum sem lögðu leið sína til okkar í sumar þá tilkynnum við að hafinn er undirbúningur fyrir næsta starfsár tónleikaraðarinnar. Tekið er á móti umsóknum á blaakirkjan@blaakirkjan.is. Með umsókninni þarf að senda inn ferilskrá og drög að dagskrá. Umsóknir verða afgreiddar í febrúar svo þær þurfa að berast fyrir mánaðarmótin janúar-febrúar 2013. Tónleikarnir verða sex talsins og þeir fyrstu verða haldnir miðvikudaginn 10. júlí 2013. Eins og margir vita eru tónleikarnir á miðvikudagskvöldum í Seyðisfjarðarkirkju, Seyðisfirði.

Dagskrá 2012

 11. júlí
Skuggamyndir frá Býsans – Byzantine Silhuette,   Balkantónlist
Haukur Gröndal – Klarínett
Ásgeir Ásgeirsson – ýmis framandleg  strengjahljóðfæri
Þorgrímur Jónsson – Bassi
Erik Quik – Tommur og slagverk
18. júlí
Elín Ey
leikur eigið efni.  Ath þessi tónleikar hefjast kl. 21.00
25. júlí.
Melankólía í melódíum og fjörugir dansar
Gunnar Kvaran – selló
Elísabet Waage – Harpa
1. ágúst
Andrés Þór kvartett
Andrés Þór Gunnlaugsson – gítar
Agnar Már Magnússon  - píanó og hljómborð ýmis konar
Þorgrímur Jónsson – Kontrabassi
Scott McLemore – Trommur
8. ágúst
Minningartónleikar um Jón Þórarinsson
Auður Gunnarsdóttir – sópran
Gunnar Guðbjörnsson – Tenór
Helga Bryndís Magnúsdóttir- Píanó
15. ágúst
Ást og kærleikur
Elín Ósk Óskarsdóttir – sópran
Jónas Þórir – Píanó