Klas Poulsen er umsjónarmaður Bláu kirkjunar 2013, hann svarar tölvupósti á blaakirkjan@blaakirkjan.is og síma 845 2716. Klas starfar annars sem verkefnastjóri á menningarsviði Austurbrúar ses.
Nýtt starfsár Bláu kirkjunnar
Um leið og við þökkum þeim tónlistarmönnum sem lögðu leið sína til okkar í sumar þá tilkynnum við að hafinn er undirbúningur fyrir næsta starfsár tónleikaraðarinnar. Tekið er á móti umsóknum á blaakirkjan@blaakirkjan.is. Með umsókninni þarf að senda inn ferilskrá og drög að dagskrá. Umsóknir verða afgreiddar í febrúar svo þær þurfa að berast fyrir mánaðarmótin janúar-febrúar 2013. Tónleikarnir verða sex talsins og þeir fyrstu verða haldnir miðvikudaginn 10. júlí 2013. Eins og margir vita eru tónleikarnir á miðvikudagskvöldum í Seyðisfjarðarkirkju, Seyðisfirði.
Dagskrá 2012
Nýr starfsmaður
Árný Bergsdóttir hefur tekið við framkvæmdastjórn sumartónleikaraðarinnar úr hendi Aðalheiðar. Árný hefur síma 470 2302 og farsímann 866 1209 og svarar netfanginu blaakirkjan@blaakirkjan.is . Stjórn bláu kirkjunnar býður Árnýju velkomna til starfa.