Um leið og við óskum vinum og velunnurum Bláu kirkjunnar gleðilegs árs tilkynnum við að opið er fyrir umsóknir vegna Sumartónleikaraðar Bláu kirkjunnar 2025. Markmið okkar hefur ætíð verið að bjóða upp á fjölbreyttan og vandaðan tónlistarflutning og sumarið 2025 hyggjumst við halda sex tónleika, á miðvikudagskvöldum frá lokum júní fram í byrjun ágúst. Áhugasöm sendi póst á blaakirkjan@blaakirkjan.is þar sem fram koma drög að dagskrá tónleikana, ferilskrá og tóndæmi.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar næstkomandi.
//
Happy new year! Applications are open for the Blue Church’s Summer Concert Series 2025. Our goal has always been to offer our concert guests a varied and high-quality music performance. In the summer of 2025, we plan to hold six concerts, on Wednesday evenings from the end of June until the beginning of August. Interested are encouraged to apply by sending an email to blaakirkjan@blaakirkjan.is The application must include a draft of the concert program, CV and an audio/video sample.
The application deadline is February 3rd.