Select Page

Tríó Öræfi og Arnaldur Arnarsson

Arnaldur Arnarson fæddist í Reykjavík árið 1959 og hóf gítarnám í Svíþjóð tíu ára að aldri. Hann lærði síðan í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni og lauk þar námi vorið 1977. Hann stundaði framhaldsnám í Englandi og á Spáni, þar sem helstu kennarar hans voru Gordon Crosskey, John Williams, George Hadjinikos og José Tomás. Með sigri í XXI alþjóðlegu “Fernando Sor” gítarkeppninni í Róm 1992 og einleikstónleikum á Listahátíð í Reykjavík sama ár skipaði Arnaldur sér á bekk með fremstu tónlistarmönnum Íslands. Hann hefur margoft komið fram á Íslandi og haldið tónleika í Evrópu, Ástralíu, Bandaríkjunum og Suðurameríku. Arnaldur hefur um árabil kennt gítarleik og verið aðstoðarskólastjóri við Luthier Tónlistar- og dansskólann í Barcelona en starfar nú reglulega á Íslandi við kennslu og tónleikahald. Hann hefur haldið námskeið í tónlistarflutningi víða um heim og setið í dómnefndum í alþjóðlegum tónlistarkeppnum.

Sóley Þrastardóttir stundaði þverflautunám hjá Jóni Guðmundssyni við Tónlistarskóla Austur-Héraðs á unglingsárunum og nam síðan flautuleik hjá Bernharði Wilkinson og Hallfríði Ólafsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún lauk svo BMus gráðu í flautuleik frá Listaháskóla Íslands hjá Martial Nardeau. Þaðan lá leiðin til University of Oklahoma í Bandaríkjunum, þar sem hún nam hjá Valerie Watts og útskrifaðist með MMus og DMA gráður í flautuleik. Sóley hefur komið fram sem flautuleikari víða um heim en undanfarin ár hefur hún aðallega lagt áherslu á að vera virk í tónlistarlífinu á Austurlandi. Hún hefur m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Austurlands, MELA listamannafélagi og flautukvartettinum Bjartsýni og komið fram á tónleikaröðinni Tónlistarstundum, tónleikaröð Bláu kirkjunnar og tónleikum á vegum Tónlistarmiðstöðvar Austurlands.

Þórunn Harðardóttir er fædd og uppalin í Hafnarfirði þaðan sem hún kláraði framhaldspróf í víóluleik 2005 með Guðmund Kristmundsson sem aðalkennara. Þaðan hélt hún til Birmingham í Englandi og lauk BMus prófi undir handleiðslu víóluleikarans Rivku Golani. Þegar Þórunn fluttist aftur heim fékk hún starf við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og starfar þar enn í dag við fiðlu- og víólukennslu, auk þess að stjórna strengjasveitum skólans. Þórunn hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum sem víóluleikari hér á landi í öllum geirum tónlistar, en hefur sérstakan áhuga á órafmagnaðri kammertónlist og/eða verkefnum þar sem víólan fær að njóta sín. Hún er fastur meðlimur strengjasveitarinnar Spiccato og spilar reglulega með Sinfóníuhljómsveit Austurlands og Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.

Ásdís Arnardóttir sellóleikari hefur búið og starfað á Norðurlandi frá árinu 2007. Hún kennir við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskóla Eyjafjarðar og leikur með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Hún hefur á þessum tíma verið virkur þátttakandi í tónlistarlífinu og komið fram á  fjölmörgum viðburðum á svæðinu eins og Kirkjulistaviku í Akureyrarkirkju, Barokksmiðju Hólastiftis, Sumartónleikum á Hólum og Norðlenskar konur í tónlist svo eitthvað sé nefnt. Ásdís var Bæjarlistamaður Akureyrar árið 2020. Áður en Ásdís flutti norður starfaði hún við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Suzukitónlistarskólann í Reykjavík. Hún var með samning við Sinfóníuhljómsveit Íslands 2007-2010, spilaði með Íslensku Óperunni og tók þátt í ýmis konar samspili. Ásdís er með mastersgráðu í sellóleik frá Boston University.