Select Page

Björt Sigfinnsdóttir er fædd, uppalin og búsett á Seyðisfirði. Hún hefur stundað tónlistarnám af ýmsum toga frá blautu barnsbeini og kom fyrst fram aðeins 7 ára gömul þegar að jólalagið “Hvenær koma jólin” eftir móður hennar Aðalheiðu Borgþórsdóttur, sigraði fyrstu jólalagasamkeppni rásar tvö.
Björt hóf ung að læra söng og á hin ýmsu hljóðfæri við Tónlistarskóla Seyðisfjarðar en þar lærði hún meðal annars á saxófón í um 10 ár hjá Einari Braga Bragasyni og klassískan söng í árabil hjá Muff Worden. Þaðan lágu leiðir hennar í nám í jazz og rokk söng við söngdeild tónlistarskóla FÍH á árunum 2005-2007 sem svo varð til þess að hún fór í CVI- Complete vocal technique skólann í Kaupmannahöfn árið 2007. Auk þess var Björt á raftónlistar braut Tónlistarskóla Kópavogs einn vetur.
Björt gaf út plötu með frumsömdu efni árið 2016 undir listamanna nafninu FURA. Á árunum 2016-2018 ferðaðist Björt víða um heim með tónlist sína og spilaði á festivölum um alla evrópu, auk þess að eiga lög í alþjóðlegu kvikmyndunum “Agnes joy” (IS) leikstýrt af Silju Hauksdóttur og “Mens vi lever” (DK) leikstýrt af Avaz bræðrunum.
Auk þess fer Björt með lítið hlutverk, þar sem að hún syngur íslenska þjóðlagi “vísur vatnsenda rósu”, i Hollywood kvikmyndinni “Justice league” sem leikstýrt var af Sack Znyder.

Ásgeir Jón Ásgeirsson fæddist og ólst upp í Kópavogi, Ásgeir lærði bæði hér heima og í Hollandi og lagði áherslu á Jazz og pop í sínu námi. Undanfarin 20 ár hefur Ásgeir kafað djúpt ofan í tónlistar stefnur og sögu Persírskrar, Arabískrar, Grískrar, Tyrkneskrar og Balkanskrar tónlistar og stúderað hljóðfærin Oud, bouzouki og tamboura.
Ásgeir hefur spilað á óteljandi tónleikum víða um Evrópu og Asíu og spilað inn á meira en 100 plötur með öllum helstu íslensku músíköntum samtímans sem og erlendu tónlistarfólki m.a. Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stótsveit Reykjavíkur svo eitthvað sé nefnt.
Auk þess er Ásgeir tónskáld og hefur gefið út sex plötur undir eigin nafni, þar á meðal tvær jazz plötur með eigin útsetningum og þrjár plötur með íslenskum þjóðlögum í samstarfi við virt tónlistarfólk frá fyrr nefndum löndum. Síðasta sólóplata Ásgeirs Crossing borders hlaut íslensku tónlistarverðlaunin í jazzflokki sem plata ársins. Ásgeir hefur samið og flutt tónlist fyrir leikhús og bíómyndir og var lag hans Cairo vibe af Crossing borders í dönsku konunni sem sýnd hefur verið viða um heim.
Ásgeir var valinn listamaður Kópavogsbæjar árið 2016.

Sigmar Þór Matthíasson, bassaleikari og tónskáld, er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann lauk framhalds- og burtfararprófi árið 2012 frá Tónlistarskóla FÍH og útskrifaðist árið 2016 með BFA Í Jazz og nútíma tónlist frá hinum virta bandaríska háskóla The New school í New York.
Sigmar hefur samið og útsett verk m.a. fyrir Stórsveit Reykjavíkur, hefur leikið með mörgu af helsta tólistarfólki landsins, komið fram á hinum ýmsu tónlistarhátíðum og spilað inn á fjölda hljómplatna, bæði hér heima og erlendis.
Sigmar hefur gefið út þrjár sóló plötur í eigin nafni, verið tilnefndur alls tíu sinnum til Íslensku Tónlistarverðlaunanna og hlotið þau í tvígang.

Birgir Baldursson er einn virtasti trommuleikari Íslands fyrr og síðar. Hann ólst upp í kópavogi en er nú búsettur á Reyðarfirði. Birgir hefur slegið taktinn frá unga aldri og hóf feril sinn aðeins 10 ára gamall með skólahljómsveit Kópavogs. Síðan þá hefur hann spilað á tónleikum, böllum og inn á hljómplötur með þorranum af ástsælustu hljómsveitum og tónlistarfólki Íslands. Þar má meðal annars nefna Mannakorn, Blúsmenn Andreu, Unun, Dr. Gunna, Kombóið, Sálin hans Jóns míns og marga fleiri.
Birgir hefur auk þess spilað á fjölmörgum tónlistarhátíðum, í kvikmyndum og í leikhúsum hér heima og erlendis, en hann var kjörinn heiðursfélagi og Blúsmaður ársins hjá Blúsfélagi Reykjavíkur árið 2017.